20apríl
Já ég held það bara, Hef ekkert að skrifa um.
Peace out
Stebbi Klikk
11apríl
Ég er enn að gera það upp við mig hvort ég eigi að byrja að blogga aftur...... sem er einstaklega furðulegt þar sem ég er einmitt að blogga akkúrat núna og er því að öllum líkindum byrjaður að blogga aftur.
Skrýtið.
Fór til Berlín um áramótin, drakk bjór og brennivín og hitti fólk sem var með mér í skólanum í Danmörku. Þar var einnig Pési Færeyingur sem er yndislega þunglynt eintak. Alltaf gaman að drekka með svoleiðis gaur sér við hlið. Svo fór ég í eitthvað fjandans rave partí á gamlárskveld, ekki alveg minn bolli af bjór en samt alltaf gaman að verða vitni að einhverju eins fáránlegu og sveittum þjóðverjum í krampkaköstum við hljóðhimnunauðgunartónlist, swingin' glowsticks eins og það væri enginn morgundagur. Hresst.
Svo fór Ég Til Bretlands nú ekki alls fyrir löngu með Heimi og Evu. Þar var drukkið og spilað Wii, svo var þynnka og hellingur af söfnum, svo var vonbrigði með London Dungeon (megi sá staður brenna og hrynja sem allra fyrst) svo var St.Patricks day og Íri sem var eins og írskur búálfur, svo var buckingham höll og besta myndakrass sögunar. Svo var eitthvað fleira en ég held ég hafi drepið á því mikilvægasta.
Endilega skoðið myndirnar á www.myspace.com/brengl
Að lokum vil ég tileinka þessa færslu þeim Ólafi Sindra (Ofsanum) og Elvari Berg (EL Varberg) þar sem þeir játuðu fyrir mér um helgina að þeir fái hreinlega "the shakes" ef þeir skoða þessa síðu ekki daglega.
Njótið.
Paz
S
01desember
Lúsamarkaður Stefáns greinilega ekki að gera sig. Menn eru alls ekki með á nótunum þar sem allt gamalt drasl er Hámóðins í augnablikinu.
Mad props til Atla "Apla" Sigþórss fyrir að vilja borga einn þússara fyrir Shatnerinn. Fyrir þetta framlag fær hann að halda peningnum og hirða myndina. Gripurinn verður veittur við hátíðlega athöfn á einhverri knæpu á næsta fylleríi. Klöppum fyrir honum!
Svo nældi Sigvaldi sér í jólafötin sín á markaðnum. Eflaust eftir að taka sig vel út strákurinn í höfuðkúpuhlýranum, rónaskyrtunni og fjólubláum Airwalk jakka á aðfangadag. Jólakortsmyndin í ár, ekki spurning! P.s. var að muna það núna að ég ældi einu sinni á hægri erm þess margrómaða jakka, eftir slatta af volgum bjór og White Russian ef mig minnir rétt. Njóttu!
Annars er kappinn orðinn algjör MeðalMummi í augnablikinu, kominn með fasta vinnu og alles. Líður eflaust ekki á löngu þar til ég verð kominn með Konu og börn, hús, hund, combover, góða ístru, drykkjuvandamál (næstum komið :) ), Volvo Station og helling af afborgunum.
Neinei, það er fínt að vera orðinn svona 9-5 manneskja. Reyndar 9:30-6 hjá mér en whatever.
Já hvað er ég svo farinn að gera? ég skal gefa ykkur vísbendingu. Ég klæðist svörtum bol með gulri mús á og stend inní BT í hafnarfirði með feikað bros og reyni að selja fólki eins og ykkur allskonar raftæki og afþreyingarefni.
Semsagt: kallinn bara orðinn bankastjóri!!!!
Það er fínt að vinna í BT. Ég er aðeins búinn að vinna þar í rúma viku en er kominn svona ágætlega inní starfið.
Svo er kallinn bara á leið til Berlínar eftir jól, ætla að skreppa til Nínu vinkonu minnar og djamma hressilega með henni og Pésa færeying á gamlárskvöld. Það á eftir að vera epísk ferð.
Annars hef ég ekkert meira að segja í bilið.
Pís Peephole
Stebbi BT-Rotta
07nóvember
Ég hef ákveðið að selja ýmsa muni sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina. Allir hafa þeir einhverja sögu og vonandi geta þeir glatt aðra og fært mér smá fé upp í hendurnar.
Svona gengur þetta fyrir sig.
Hér fyrir neðan er listi með gripunum sem og stutt lýsing á þeim. Ef þið viljið bjóða í hluti skrifið þá athugasemd þar sem fram kemur hversu mikið þið eruð tilbúin að greiða. Innan fárra daga mun ég svo greina frá hverjir fá hvaða hlut.
Hér er listinn
Kassi af tölvuleikjum
Eðal pappakassi Merktur Sólskyns Múslí frá Gott Fæði sem er stútfullur af Pc og PS2 leikjum.
PC:
Lionheart
midtown Madness
Extreme Biker
Dragons Lair
Codename Eagle
Motocross Madness 2
Myth 2
The Nomad Soul
Sanitarium
Quest for Glory 5
Star Wars Knights of the old rep.
Gangsters 2
PlaneScape Torment
Commandos 3
Deus Ex
Operation Flash
point
PS
Tenchu 2
PS2
Fight Night Round 3
Fight Night 2004
Manhunt
True Crime LA
Aggressive Inline
NHL 2003
Pride Fighting Championship
The Getaway
Enter The Matrix
Vampire Night
Metal Gera Solid 2
Mace Griffin
VHS myndir, Nokkrir þrusu titlar inná milli
The Darkest Light
A Perfect Murder
Belly
Breathless
Art of War
Blair Witch 2
Godfather Part 3
Föt, Ýmsar flíkur sem ég passa ekki lengur í eða sem ég geng ekki lengur í
-Hvítur Hlýrabolur með Hauskúpumynd
-Hvítur og Svartur Fubu bolur sem ég klæddist einmitt oft í fótboltanum á Seyruvellinum á Akureyri sællra minninga (farmtíðar Safngripur).
-Svartur mikill Southpole bolur með 32 framan á
-Fjólublár Airwalk Jakki keyptur á Hróaskeldu 2003
-Billabong skyrta, svona "tískulega rónaleg"
-Billabong bolur, grænn
-Blár Íslensk erfðagreining bolur, hef ekki hugmynd um hvar ég fékk hann.
Svo er það Rúsínan í Pylsuendanum.
Innrömmuð mynd af William Shatner sem Captain Kirk, greinilega tekin seint á ferlinum þar sem bumban sést greinilega gegnum búninginn. Það verður sennilega hart barist um þessa en Atli Sigþórs fær hana ef ekkert alvöru tilboð berst í þessa einstöku mynd, þar sem ég hef margoft lofað honum henni, en aldrei verið með hana á mér þegar við hittumst.
Þá er bara um að gera að bjóða í hlutina og ekkert tilboð er of hátt, muna það.
Stebay.
25október
Flugstöðvarfyllibyttur eru sennilega til annarsstaðar í heiminum en hvergi eru þær jafn áberandi eins og í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fólk keppist við að henda í sig eins miklu áfengi og það getur áður en kallað er úti vél, svo er það jafnvel byrjað að hella í sig tollinum áður en áhöfnin fer yfir öryggisbúnað vélarinnar, sem, síðan farþegaflug hófst, hefur fengið 0% áhorf.
Þessu varð ég vitni að á ferðalagi mínu til Spánar. Ég vissi að vélinni var seinkað um einhvern tíma, þannig að ég var nú ekkert að flýta mér á völlinn. En þegar þangað kom sá ég strax að þessi flugferð yrði skrautleg. Setningar eins og "heyrðu, hvað ertu með í forgjöf", eða "ég fékk helvíti fínan pólóbol skítódýrt síðast þegar ég fór til spánar", einnig heyrðist "Titlest er málið sko!" Fólk sem fer í asnaleg föt og slær litla hvíta kúlu eftir grasflöt þangað til þeir koma að lítilli holu þar sem þeir renna kúlunni ofaní. Semsagt Golfarar!!
Flestir fögnuðu seinkuninni, þar sem það þýddi meira bús og golfsögugort. Þetta lið hellti sig alveg leiðinlega fullt og drakk svo alla leiðina í vélinni, mér og öðrum til mikillar mæðu. Menn stóðu í ganginum fyrir flugfreyjunum, pöntuðu einn drykk og svo annan þegar hann kom og svo 5 þegar hann kom. Alltaf eru einhverjir sem hafa keypt sér litla rándýra myndavél, bara af því að það stóð tilboð!! fyrir ofan hilluna (maður-verður-nú-að-eiga-svona-svo-er-þetta-á-tilboði! komplexinn sem ég mun örugglega drepa á í framtíðinni) og þeir þurfa alltaf að smella af 156 myndum af fólkinu í flugvélinni. Troða sér fremst fram hjá matarvagninum og rekast á allavega 5 manns með áfengisútbelgdum líkamanum, svo standa þeir hálfskakkir sökum bakkusar, annað augað lokað hitt hálfopið, blóðsprengt og fljótandi og svo er smellt af í gríð og erg. Góðar minningar.
Minnti mig mjög mikið á útskriftarferðina í MA 2002. Þá var svoldið um fyllerí og svona um borð, en þá var ég 19 ára!! Ég held að þegar maður er farinn að nálgast sextugt ætti maður að kunna að haga sér, ég er 23ja og ekki haga ég mér svona.
Allavega var Spánn magnaður eins og alltaf. Hitti gamla kunningja, drakk San Mig og fór í grillveislu. Good Times!
Er að spá í að flytja aftur út, kannski næsta sumar.
Allavega verð ég að fara að finna mér vinnu fljótlega þar sem kallinn datt af skólabekknum ekki fyrir löngu. Það er nú bara gott mál held ég, viðskiptafræðin ekki að gera sig.
Að lokum vil ég benda Ásdísi á að linkur á bloggsíðuna hennar er kominn inn á síðuna þannig að hún getur hætt að skæla.
Ég mun henda inn myndum einhvertíman á þessuári eða næsta þannig að bíðið spennt.
Kvittiði svo í gestabókina villidýrin ykkar, ég trúi því varla að bróðir minn sé sá eini sem er ábyrgur fyrir öllum heimsóknum á þessa síðu.
Paz
Stebbi Stútur
12október
Ég er farinn til Spánar.
Sjáumst eftir viku!
Hasta Luego
Esteban
09október
er svoldið merkilegur. Á honum hanga allar blaðaúrklippur sem eru um eða minnast á einhvern úr ættinni. Á honum er ég ekki. Þetta truflar mig aðeins. Jón söngfugl er tíður gestur á honum, litlu frændur mínir sem voru einhvertíman í hagkaupsbæklingi og meira að segja Silli hefur komist á ískápinn.
Einhvern tíman þegar hann var lítill thug á Akureyri sá hann bíl renna niður Bjarmastíginn og steypast niður í einhvern garð. Það var víst einhver í bílnum og hann kom skríðandi út alblóðugur. Silli tók stjórn á aðstæðum og skipaði einhverjum gaur sem kom þarna að að hringja á sjúkrabíl. Svo kom einhver rannsóknarblaðamaður og tók viðtal við pjakkinn og búmm! silli kominn á ískápinn. Of auðvelt. Of auðvelt.
Viljiði vita hvað gerðist í raun og veru?
Svona fór þetta niður:
(í Svarthvítu) Sigvaldi er á röltinu niður Bjarmó, Sér einhvern gaur vera að brasast í sendiferðabíl í götunni. Man eftir velgengni þeirra er hafa prítt margumtalaðan kæliskáp, stoppar,hugsar sig um, fimm djöflar birtast á hvorri öxl (hann er illi tvíburinn muniði), glottir, hendir upp hettunni og svo eitt spark í rassinn á gaurnum,hann hendist inn í bílinn, silli hendir druslunni úr gír og bílinn flýgur niður brekkuna og yfir kantstein, þrusar á tré og plammar síðan nokkra metra niður í garðin. Silli losar sig við hugsanlegt vitni með því að láta hann hringja á hjálp, á meðan hótar Silli greyið manninum sem var í bílnum, og er nánast í dauðadái, öllu illu ef hann skvílar. Svo stendur Silli pollrólegur þegar gaurinn er fluttur nánast lífvana inn í sjúkrabílinn og setur vísifingur fyrir munninn og gerir svona "það er eins gott að þú þegir, annars!!" merki og rennir svo fingrinum yfir hálsin og glottir. Svo tekur hann allt kreditið og kemst á skápinn. Við vitum að þetta er satt. Viðurkenndu það bara Sigvaldi! Þú stórslasaðir greyið manninn bara svo að þú fengir þína fimm daga á skápnum!!! Ekki nóg með það, það þurfti líka að höggva tréið sem bíllinn lennti á niður. Eitt elsta tré Evrópu ef mig minnir rétt. Var það þess virði? ha?
Þarna sjáiði hvernig áhrif þessi ískápur getur haft á fólk. Amma og Afi eru í útlöndum núna. Kannski að ég ætti að skreppa aðeins til þeirra meðan þau eru í burtu og úkljá þetta ískápsdilema í eitt skipti fyrir öll. Koma þau heim stend ég á miðju eldhúsgólfinu með exi, búinn að hakka skápinn í atóm. "hvað hefuru gert barn!!?. "Ég?" " Ég var bara að bjarga framtíð ættarinnar, það var ekkert merkilegra en það. Þið getið bara þakkað mér fyrir seinna".
Fyrsta blaðagreinin á nýja ískápnum:
Ungur drengur dæmdur í ævilanga vist á Kleppi fyrir að brytja niður ískápa víðsvegar um landið og fyrir að halda bloggsíðu sem stofnar öryggi þjóðarinnar í hættu.
Annars er bara allt gott að frétta af mér.
Friður fólk!
Stebbi
03október
Hæ.
(skrifað einni sígó seinna). Hvað er ég að byrja að blogga aftur? Að halda bloggsíðu getur verið varasamt.
Maður skrifar kannski eitthvað sem að fer fyrir brjóstið á einhverjum, fimm vikum seinna er maður að labba í kolaportinu, "Hey! bloggid.bloggar.is"! huh? hugsar maður, snýr sér við, einhver að æpa bloggsíðu urlið mitt? en of seint. Stingur í ennið, blóðbragð í kjaftinn og svo einhver ljúfur draumur um áhyggjulaust líf, framandi lönd og yndisfagrar meyjar.
Svo kikkar raunveruleikinn inn úr fókus með skrýtnu suði, Harðfisks-nammi-inni-hjá-gamlafólki-lykt og þú þarft enn að borga af bílnum. Hann er ekkert betri í fókus. Tveir pólverjar, ógæfumaður og eldri kona sem hefur reykt úr sér barkan stumra yfir þér.
"eilhaihmehhh?", hrymur í barkalausu konunni. "hvah?" er það eina sem kemur út úr þér, enda allur líkaminn í sjokki yfir þessu, haldin skyndifundur í heilanum en það eina sem kemur út úr honum er Hvah?. Helgardrykkjan að skila sínu. klapp klapp! "Hún spurði nú aðeins hvort að það væri í lagi með þig" Segir annar pólverjinn, á betri íslensku en þú munnt nokkurtíman tala. Dugnaðarfólk.
"Djöfull varstu nelldur mar, bara beint í ennið!!! heh!!!" segir Hnakkinn sem labbar framhjá og grípur um leið í afturendan á ljóshærða sílikondýrinu sem er með honum. Risasólgleraugun aðeins til að fela tómleikan sem skýn annars út úr himinbláu augunum. Stolt okkar þjóðar. tveggjakílóa múrsteinn beint í smettið bara útaf bloggi um hvað þessir kárahnjúka-mótmælenda-treehugging-vælukjóar væru asnalegir.
Einhver vegan trefill les þetta, grætur smá,hringir í tölvunördafélaga sinn sem fær sér einn Latte og kemst svo að því hver þú ert, setur á sig lopavettlinga og ullarhúfu nær svo í 50 ára DBS hjólið sitt sem hann sérpantaði frá Hollandi til að vera meira artí, stalkar þig og grýtir þig. Búið.
Þetta er kannski svona worst case, en getur gerst engu að síður. Allavegana er ég byrjaður að blogga aftur.
pís.
Stebbi